...jæja fór í staffa-partý í gær og var það ágætt. var fámennt en góðment og hélt unglingadeildin uppi heiðrinum í fylleríi og rugli...
..horfðum aðeins á skaupið '89 og var það bara nokkuð gaman að sjá það aftur.... mest findið var að pálmi gest lék Davíð oddon og svo lék gísli rúnar (sem var grennri en ég þarna.. enda reykti hann..hehe) ólaf grís... þetta er skaupið þar sem SKATT MAN kom til sögunar.. hehehehe
en já hvet alla lesendur að skrifa niður ráð gegn þynku eða ráð við þynku..
hafa smá af-þynku banka hér... ;)
bæ bæ
p.s. skrítið að vera þunnur á föstudegi
Palli tjáði sig 14:11
23.4.04
.... jæja, þá er mar svoldið vankaður. er mættur í vinnu og er ekki alveg tengdur. ég fór á ViOlEnT fEmMeS í gær á brodway og það var snillari! hittumst fyrst heima hjá gígju og þar sem bílinn lét illa ákvað ég að drekka 3 bjóra... ekki einn heldur 3... svo fórum við á brodway og ég kaupti einn bjór og svo þegar líða tók á kvöldið þá geispaði ég útí eitt! svo vaknaði ég um 6:30 þar sem bílinn var á víðimel og ég tók því strætó og var það bara frábært þar sem veðrið var æði!!
en já sumarið er komið....
Palli tjáði sig 09:22
22.4.04
...GlEðIlEgT sUmAr..
..og takk fyrir veturinn..
hélt ég myndi fá sumargjöf... en fékk ekkert... reyndar fékk ég sól og gott veður ;)
Palli tjáði sig 11:17
21.4.04
..úffs.. var sofnaður um 00:00 í gærkveldi og viti menn fékk ég sms sem ég vaknaði við og pirraði mig svo ég var vakandi til að ganga 5.... urrghh.. og minn bara kominn á fætur um 8 leitið.. ekki spyrja mig afhverju ég held að það sé bara sjálfs-píningar-kvöt..!!
en já violent femmes á morgun.. hef e-ð til að hlakka til...jei..!! það verður stuð að tjútta með gígju og díu..
man að ég heirði í violent femmes fyrst á 22 hér í denn á fimtudags-djammi. þá hittust allir kynvillingar á höfuðborgarsvæðinu og dönsuðu og spjölluðu á fimtudögum á 22. sakna þess tíma smá... en þá voru þeir spilaðir á fullu og ég bara strax fann að þetta var mín grúbba... svo ég er spentur fyrir að mæta á brodway á morgun.
lappi er e-ð haltur.. mamma þurfti að hjálpa honum upp tröppurnar í morgun, hann komst ekki upp. hann er búinn að vera e-ð slappur. ætlaði að skokka með hann en ég treysti honum ekki.. best bara að hann hvíli sig smá. held kanski að hann hafi bara legið illa í bælinu. það er alger brandarin að sjá hann allan í hnút í þessari körfu með stærsta kodda í heimi (ævar brósi saumaði hann í saumum og gaf honum) og svo stórt teppi sem han ndregur oft yfir sig.
en já.. er orðinn smá kvebbaður... urgh!
Palli tjáði sig 10:20
20.4.04
..ég er kanski svoldið einfaldur og vitlaust en hvað fær fólk til þessa að vera leiðinlegt og láta öðrum líða illa?
þegar mar reynir sitt besta í að vera góur, skemmtielgur og bara reynir að vera góður vinur...
æhh... það er margt sem mar á ólært í þessari veröld..
Palli tjáði sig 23:47
.. að vinna í 16 tíma getur verið fúlt!!
ég hitti agga spámann á sunnudaginn og fengum við okkur te einsog siðað fólk gerir og löbbuðum svo í norðurmýrini.. .sáum allavegnaa 3 kjallaraíbúðir með aðventukransa í gluggunum eða bara skreitt jólaskrauti í bak og fyrir...það gerði mig svoldið stressaðan enda komið myrkur...
já mér finst að tilvitnun dagsins eigi bara alltaf að vera hérna...finst hún svo flott að ég get bara ekki fundið aðra sem gæti tekið við af henni.
já var vakinn í gær um 7 af vinnuni og beðinn að koma á aukavakt. ég sagði "nei, en ef þið náið ekki í neinn anna getiðið hringt í mig aftur og þá kem ég" um leið og ég lagði svo á þá áttaði ég mig á að þeir myndu líklega bara bíða í korter og hringja svo í mig, og viti menn þeir hringdu eftir korter og gat ég ekki annað en sagt já... var orðinn þoglumæltur og illa tengdur um 7...
..já svona er læfið..
já svo er ég hættu að horfa á sörvævor.. síðasta manneskjan sem ég fýla var kosin út núna = kathy.. segi ekki meira um þetta nema að þetta er frat lið!!
Palli tjáði sig 09:51
18.4.04
..ROP... úps.. afsakið.
en ég hef nú löggilda og góða afsökun fyrir þessu ropi og er hún sú að ég var í matarboði hjá tótu og jóni viðari. og þvílíkur stemmari. ekki nóg með að þau 2 voru þarna þá var hann eyjólfur á svæðinu og dagga systir hennar tótu.
tóta snaraði framm kjúkling, kartöflur, sósu og sveppum einnig voru scarlottu laukar þarna.. eða charlottu laukar.
svo kom að desertinum. ef það er sykurlaust í öllum búðum í vesturbænum þá er góð ástæða fyrir því... desertinn vara bara svona einsog tóta... sæt og ómótstæðileg og mar fær aldrei nóg...hehehe
svo spjölluðum við fram eftir og var þetta bara mjög vel hepnnað og það besta var kanski að við æfðum okkur vel og lengi í ómar ragnarsson hlátrinum... og verð ég að segja að ég næ honum bara nokkuð vel.
en já... takk fyrir mig ..
Palli tjáði sig 09:48
tilvitnun dagsins
dress slutty and shut up, that´s my motto. (Rosario í will og grace)