..það var sextug kona sem var orðin leið á lífinu! Svo hún ákvað að svipta sig lífi. Hún las sig til á netinu um góðar leiðir til að ganga frá sér! Svo hún ákvað að stinga sig með hníf í hjartastað! hún las sig til á google.is og sá að hjartað væri þar sem brjóstið er, svo hún fann staðinn og stakk sig.
....það kom svo framm á mbl.is daginn eftir að sextug kona hafi dáið af svöðusári á lærinu...
... ef þið skiljið hann ekki látið mig vita....
Palli tjáði sig 11:56
24.8.06
..jæja...
..vildi bara láta vita að vinur minn og pólitískur samherji hann Magnús Már Guðmundsson hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns ungra jafnaðarmanna á landsþingi hreyfingarinar helgina 16. og 17. september. Þetta er kjarnorku drengur, einlægur, samkvæmur sjálfum sér og traustur. Ég kinntist honum í stjórn ungra jafnaðarmanna í Reykjavík en þar er hann varaformaður. Verð ég að segja að vinnubrögð hans þar og í borgarstjórnarkosningunum síðastliðnum voru til fyrirmyndar. Ég styð hann sem næsta formann ungra jafnaðarmanna.
hér koma smá upplýsignar um kauða
"Magnús Már er 24 ára stjórnmála- og sagnfræðinemi við Háskóla Íslands. Magnús hefur verið félagsmaður í Samfylkingunni frá stofnun flokksins og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum undanfarin ár.
Um tveggja ára skeið ritstýrði Magnús Már Pólitík.is, vefriti UJ og sl. fjögur ár hefur hann átt sæti í stjórn UJ í Reykjavík. Magnús var framkvæmdastjóri UJ fyrri hluta árs 2004 og á nýjan leik frá því í kosningabaráttunni sl. vor. Ennfremur er Magnús fyrrverandi gjaldkeri Keðjunnar, nemendafélags Kvennaskólans, og Röskvu, samtaka félagshyggjufólks við Háskóla Íslands."
...bara áfram maggi ! :D
...p.s. kíkið á bloggið hans ef þið viljið forvitanst um hann!
Palli tjáði sig 17:54
23.8.06
...jæja..
..verið e-ð fjarlægur undanfarið og bið ég mína dyggu lesendur afsökunar. Mar má ekki stoppa að blogga smá þá fær mar meila og sms frá fólki sem er að minna mig á bloggleysið! Fær fólk ekki fréttablaðið?? hefur það ekkert betra að lesa með seríósinu? hehe...
..en annars er ég í landi sumarprófa.. (svakalega góð hugmynd þegar ég ákvað að fara í sumarpróf).. á mér ekki líf. sit á þjóðarbókhlöðuni næstum einn sé eina og eina hræðu..... engar flottar skeifur.. en magnað hvað það er gott að læra hérna þegar það er ekki fullt af fólki og fólk labandi fram og til baka að leita að sætum eða laumast bak við bókahillur til að svara í síma.... halda nefnilega að mar heyri ekki í þeim bak við þessar "þykku" hillur..."HALLÓ, JÁ ÉG ER UPP Á HLÖÐU...HVAÐ SEGIRU ANNARS???"
.. búinn í einu.. held ég hafi nú náð því fer svo í eitt mjööög erfitt á föstudaginn, svoldið kvíðinn fyrir því. svo er ein 20 bls ritgerð sem ég ætla að skila á mánudag...bara tóm hamingja!
...sat á hlemmi í gær að bíða eftir strætó... kom 10 til 11 ára strákur labbandi.. horfði á mig og benti og sagði (fyrri framan alla) "ætlar þú að vera hlemm-róni allt þitt líf??"
...held ég kaupi mér bíl á eftir! hehe
Palli tjáði sig 12:36
tilvitnun dagsins
dress slutty and shut up, that´s my motto. (Rosario í will og grace)