Amma mín er mikil baráttu kona fyrir síðum brókum og er alltaf að láta mig fá brækur sem eru útsöluvörur úr herrafatabúð gunnsteins... eitt skiptið sagði hún við mig "þetta er kannski ekki sessí þetta heldur þér þó heitum...."
..amma og afi skutluðu mér á hlöðuna í dag... alltí einu fór amma að hlæja af strák sem var greinilega mjög kalt... ég spurði ömmu hvað væri svona findið... þá sagði amma "hehehe.... ég get alltaf séð á mönnum þegar þeir eru ekki í síðribrók því þá eru þeir svo krumpaðir í framan..hohohoh"
held að það sé svoldið til í þessu... svo ég verð líklega að fara að ganga í síðribrók í þessum klukkutíma göngum mínum á kvöldin því ekki vil ég vera allur krumpaður í framan þegar ég hitti á herra réttan og ekki vil ég heldur auka á hrukku hættuna með því að labba ekki í brók....
jæja... óver and át
Palli tjáði sig 19:27
..jæja..
...viti menn, ég er ný byrjaður að blogga aftur þá er ráðist á mann með einhversskonar keðjubréfi eða hvað sem þetta heitir! ég man í gamladaga þegar mar fékk sms í gamla (næstum) ódrepandi Nokia símann sem hljóðuðu á þessa leið "ef þú sendir ekki 20 manns sms á næsta klukkutíma muntu aldrei ganga út"....... ég hló að þessu þá en græt núna því einsog alþjóð veit (og líklega evrópusambandið í heild sinni) þá gengur minn ekki út.. þrátt fyrir klukkutíma göngur á hverju kvöldi... en svo er annað mál vil ég e-ð ganga út?
....en já vignir skan "klukkaði" mig, það þýðir að ég á að skrifa einvher 5 atriði um sjálfan mig og líklega klukka aðra.. best að byrja svo ég verð ekki alltaf þessi sami partýpúper.
1. Ég ætlaði alltaf að stofna minn eiginn stjórnmálaflokk sem væri með svona nasískum og sósíalísku ívafi reyndar smá sesar hugsjón líka (án allra drápa samt sem áður.. fyrir utan að norðmenn væru réttdræpir) ég ætlaði að senda alla báta, togara, varðskip og önnur sjávartæki til noregs og draga landið í heild sinni yfir í íslenska lögsögu... kannski svoldið vírd og insein en ég skrifaði ritgerð um þetta í flesnborg og fékk 9 fyrir. ein hugmyndin var líka að fjölga færeyjingum svo allar fjölskyldur á íslandi hefði færeyska þræla... þá gætu kerlingarnar ekki kvartað "ég er altlaf að skúra" meina hver segir að ég berjist ekki fyrir jafnrétti??
2. ég er að læra félagsráðgjöf við Háskóla Íslands en veit ekkert hvort ég vilji vinna við það en ég meina það er svo langt þangað til að ég verð stór að ég þarf ekki að hugsa um þetta *hóst*
3. hef alltaf vilja klæða gísla martein baldursson í kvennmannsföt og brenna hann á báli fyrir vestan....einsog gert var við konur í denn... en þar sem hann virðist vera kominn í kvennmannsföt (einsog sjá má í blöðum og strætóskýlum) þá þarf bara að finna kvikyndið og brenna hann.
4. ég á kött sem heitir ólafur, hann er með fallegan hvítan feld og svarta flekki og sumir þessara svötu flekka mynda hjörtu.. sem er mjög sætt... mamma finnst hann samt vera beljulegur svona skjöldóttur...
5. hummmm hvað skal ég nefna hér... kannski bara að ÉG ER AÐ FARA TIL DANMERKUR OG SVÍÐÞJÓÐAR 29 OKTÓBER TIL 9 NÓVEMBER!!!! inn jor feis !!!
...jæja best að klukka elvu - erlu bjút - elísu og g-teits.. mohohohoh... (finnst að þetta mætti frekar heita kiss kiss og útaf)
..tjá..
Palli tjáði sig 12:31
28.9.05
..jæja..
..takk fyrir góðar móttökur, ég hef greinielga skipað stóran sess í lífi fólks. Margir hafa sent mér póst, sms-skeyti og komið með óskir á msn að ég byrji aftur að blogga (magga frænka var reyndar farinn að leggja mig í einelti)
...en ég var að taka til í dálknum "fólk". Ef þið eruð komin með nýjar síður/slóðir látið mig vita og þið sem viljið komast í "fólk" dálkin bara skilja eftir slóð í kommentinu. Svo hvet ég alla bara að byrja að blogga...
hef það stutt núna því þetta er verðugur boðskapur!!! því það fækkaði e-ð svo skuggalega í "fólk" dálknum að ég þarf fleiri .... mí ní frends ;)
sí jú
Palli tjáði sig 12:21
26.9.05
..jæja...... verndari góðra gilda, baráttumaður litla mannsins, málsvari þeirra sem þora ekki að tjá hug sinn er kominn aftur...harðari, beittari og fyndnari en áður hefur þekkst.
nú skal hinn grimmi kapítalismi passa sig. þessar fáu ríku kvóta hræður íslands ættu að fara að hugsa sinn gang.......
Ég hef verið í sjálfsskipuðu frí frá blogg heimnum (var ekki rænt af sjálfstæðismönnum og pyntaður til að þegja einsog ég hef heyrt) Hvað hefur gerst á meðan ég var í þessu fríi?
þarf ég að nefna sölu símans? þvílíkar yfirlýsingar um að peningurinn sem við fáum fyrir að selja þetta mikilvæga fyrirtæki í okkar eigu á að byggja og reka nýtt hátæknisjúkrahús. Ég meina það... við ráðum ekki við að reka þetta sem fyrir er... mætti halda að veikindi yfirmanna þjóðarinnar hefði e-ð með þessa ákvörðun að gera. kannski séð meðan þeir lágu á spítalanum hvar brotinn var pottur eða bekken einsog vanur heilbrigðisstarfsmaður segir.
davíð flúinn í ísí og rólegt djobb. ætlar að hætta í stjórnmálum en fara í seðlabankann þar sem hann getur dundað við skriftir og haft það rólegt einsog hann sagði sjálfur frá. Ég verð nú bara að segja að það verður nóg að gera hjá honum nú þarf hann að takast á við efnahagsmálin sem hann hefur verið guðfaðir. svo er líka gott að fara í svona djobb þegar búið er að hækka launin um 27 % skrítið að það gerðist á sama tíma og dabbi kóngur stígur af stóli ráðherra eftir að hafa klúðrað flokknum síðustu misserin
Moggin, jónína "ekkilengurfitteðavarhúnþaðeinhverntíman" ben, jón "skipaðuríhæstaréttafdavíð" steinar, kjartan "frammkvæmdarstjórimoggans" og jón söllenberg ætluðu að ganga frá baug og meina hvaða spillingar sápuóperu land er þetta. að lesa það sem þessi jónína ben skrifar í þessum tölvupóstum.. meina er manneskjan ekki búinn að horfa of mikið á alexöndru spaulding í gædinglæt??
svo eru það vinstri grænir, það er nú þjóðflokkur útaf fyrir sig. slítur r-listanum því framsókn, samfylkingin og þeir þarna í grænum geta ekki skipt 8 borgarfulltrúm jafnt á milli sín... hvernig gerir mar það annars? er það ekki 3 og 3 og 2? meina þeim var svo boðið það og fóru samt í fýlu enda greinilega búnir að plana að slíta samstarfinu. R-listinn eða samsvarandi bandalag getur aldrei orðið aftur í reykjavík og mundi ég gera allt til að vinna gegn því þegar svona vinnubrögð að hálfu vinstri grænna eru ljós. svo býður árni sig í 2 sæti vinstri grænna og segir það vera baráttusæti listans, ég meina vildu þeir ekki 3 menn inn? ætti ekki 3-sætið að vera baráttusætið en ekki 2 sætið? ég spyr.
..þetta eru bara smá hlutir sem mig langaði að segja frá og það er meira sem mun koma næstu daga......
annars er ég í 100% skóla og 60% vinnu og geri mest lítið nema að flakka á milli þessara tveggja staða. hef það annars gott með honum ólafi mínum sem er hættur að koma með dauða fugla heim heldur er hann farinn að koma með sveppi heim..stórar hlussur... vona að hann hitti ekki á einn eitraðan og fari í vímu... ekki væri það ábætandi á samskipti okkar. sæi samt fyrir mér fyrirsögn í DV "kötturinn minn er byrjaður í dópi, seldi i-poddinn minn til að að geta skaffað sér efni" eða "handrukkarar kattarmíns brutu hnéskeljarnar mínar"en já sjáumst er farinn í bónus ... og berjumst gegn spillingu...
Palli tjáði sig 20:33
tilvitnun dagsins
dress slutty and shut up, that´s my motto. (Rosario í will og grace)