...vaknaði í morgun fór á hlöðuna og náði mér í eitt stórt borð þar sem ég þarf alltaf svo mikið pláss undir próflesturinn því ég elska að vera óskipulagður í próflestrinum það er einhvernvegin svo miklu meira skipulag hjá mér ef það er óskipulag... en já það skilur þetta enginn og enginn furða segi ég nú bara man þegar ég lenti í "smá" útistöðu við Kristínu magnúsdóttur (hrollur) sem kenndi námstækni í flensborg... en já misheppnaða mómentið snérist ekki um þetta....
..ég er að fara í próf í aðferðarfræði 2... við meigum taka öll gögnin með okkur... öll gögnin mín eru í möppu sem ég kalla leynivopnið....
..ég var búinn að ná mér í borð og fór svo að tölvunum... alltí lagi með það.. sat þar með grænu möppuna mína og var að prenta út svo ég gæti raðað í hana glósum og formúlublöðum og öðrum plöggum djöfulsins (jábbs þetta er aðferðarfræðin).. svo fór ég að ná í nokkur blöð í prentaraherbergið... gekk vel.. þau komu öll út.. svo rölti ég af stað og þegar ég var að nálgast tölvuna mína sat ekki bara einhver kona þar að skoða möpuna mína... leynivopnið mitt..helgidóminn.. hún var um 40 ára, stuttklippt klædd í prjónaða regnbogapeysu sem var líklega 80 ára... ég sagði við konuna "afsakið en hvað helduru að þú sért að gera?" konuni brá.. skiljanlega enda kom ég að henni vera að lesa möppuna mína hún horfði á mig og spurði havð ég væri að meina... ég horfði svoldið reiðilega á hana og sagði "ég vil bara vita hversvegna þú ert að skoða möppuna mína" á þessu augnabliki sá ég að fólk var byrjað að glápa á okkur... konan benti svo á borð rétt hjá sér og sagði "sast þú ekki þarna? er þetta ekki þín mappa"
...þarf ekkert að hafa þetta lengra... hennar mappa var líka græn... kaupi mér eina bleika næst svo það verði ekkert mix öp!
Palli tjáði sig 13:08
..jæja....
..ég gefst upp get ekki skrifað meira um fólk...sísússss... þetta tók bara á!!
...en já blogga meira seinna er bara með þessu að segja... búinn með kvótan um 5 hlutina í bili :D
Palli tjáði sig 00:02
tilvitnun dagsins
dress slutty and shut up, that´s my motto. (Rosario í will og grace)