..ég og tótan vorum að skoða ædol síðuna. þar er viðtal við keppendur sem eru alveg bilaðslega væmin og leiðinleg... mætti halda að þetta væri fegurðarkeppni eða úngfrú lét 96,7...
svo ég ákvað að svara sömu spurningum..... með minni væmni en ædolin okkar gera...
1. Fullt nafn? Páll Einarsson, aka MR. pain
2. Fyrirmyndin í lífinu? Siggi sýra, Krissi kuti, Bessi Bjarna og Hanibal Lecter sem opnaði augun mín fyrir nýjungum í mataræði.
3. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á þig? Er leikskóla drop át... svo ég náði aldrei tök á bókum. Einu bækurnar sem ég á eru þær sem ég nota sem pappír fyrir neðripartinn.. ef þú skilur.
4. Hvern myndir þú mest vilja hitta? Sigfríði snuff og fá 5arann minn aftur.. djöfulsins tík..
5. Uppáhaldsnafn (ef þú mættir velja þér annað nafn)? Mr búmbastik
6. Uppáhalds hlutur? Kardóflaskan, vasahnífurinn og hárlokkur úr dorrit
7. Æskudraumur? Verða ekki eldri en 40 ára...
8. Hvernig er tannburstinn þinn á litinn? Ég nota vírbursta þar sem tannsteinninn er að myrða mig.
9. Hvað sefurðu yfirleitt marga tíma á nóttinni? Ég tek þetta í túrum. Sef kanski í 3 daga og er svo andvaka í viku.. svefninn er svoldið einsog hjá sjómönnum
10. Leiðinlegasta sem þú gerir? Fara í bað og skeina mér og verða edrú... það kom fyrir 1998 í maí mánuði...mun ekki gerast aftur..
11. Ef þú fengir einn dag aleinn/alein, hvað myndirðu gera? Ræna fokking bankanna og tjútta á kaffi austurstræti... aka kaffi skít. Reyndar mundi ég ranka við mér um svona 13:00 æla og allt það.. fá sér smá spritt.. fara í landsbankann.. ræna hann og partý on..
12. Ef þú gætir skipt um starf, hvað sérðu fyrir þér að gera? Haha.. starrf.. hvaða orð er það ? hehehe... færeyska ?
13. Leyniuppskrift fyrir hæsi og kvefi? 2 dl af kardó..4 dl af landa.. 4 þornuð berjalyng og svo 5 döðlur. Allt blanað saman og drukkið með 5 lítrum af vodka. Þegar mar rankar við sér þá er kvefið búið og kanski vikan líka..
14. Uppáhaldsmatur/uppskrift? Russlatunnan bakvið argentínu.. þar getur mar verið heppinn.
15. Manstu eftir “mómenti” sem breytti öllu í lífi þínu? Já þegar ég ákvað að smakka kardóið hennar ömmu....
16. Bugs Bunny eða Daffy Duck? Captin morgan
17. Skúrar þú heima hjá þér? Jahh.. ég skúra miðbæinn oft með andlitinu á mér.
18. Hvar ætlarðu að eyða ellinni? Vó... ég mun ekki ná þrítugt svo ég geri eins og við alkarnir gerum... tökum einn dag í einu og látum þann dag kvelja okkur nógu mikið...
Palli tjáði sig 15:29
17.11.04
..jæja...
...var að bæta honum ingabirni á fólk listann minn. búinn að þekkja inga björn allt mitt homma líf og hefur han verið mér einstaklega góður og skemmtilegur félagi. bloggið hans er bara nokkuð skemmtilegt og mæli með að fólk kíki á það.
...fór á djammið á laugardag og lent í mjög sérkennilegu samtali við ungan dreng. eins og alþjóð veit þá er ég nokkuð mikið augnakonfekt... eða ég er líklegast konfekt kassi... fallega skreyttur og en þá betri og sætari og bragðgóðari undir öllu.... ef þið skiljið. einnig veit alþjóð að ég fæ rautt skegg... og ef ég safna í nokkra daga þá verður það alltaf rauðara og rauðara og að lokum appelsínugult... líkleg fékk ég þetta rauðaskegg útaf því að mar stríddi þeim rauðhærðu í grunnskóla.... eða þá útaf skyldleika mínum við ómar ragnarsson..
...jæja en samtalið var svona
ég var að dansa á dansgólfinu þegar strákur kom upp að mér og sagði
strákur - veistu.... mér hefur alltaf fundist þú ljótur
ég - núhh... ehh sömuleiðis (meina HALLÓ?????)
strákur - en núna hefuru e-ð breyst
ég- jahh.. mar skánar kanski með aldrinum
strákurinn - (strýkur 3 daga broddana mína) þetta skegg gerir þig svo kynþokkafullan
ég- ehhh... takk þarf að dansa meira..
svo forðaðst ég hann einsog ég gat allt kveldið....
svo lenti ég í því að einhver gaur elti mig langleiðina heim.. var að reyna við mig á svona skrítin "stalker"hátt... ég þurfti að labba krókaleið og hljóp svo marga hringi og allt það þar til ann gafst upp. varð svo þreyttur og kalt eftir þetta.. urghh..
..jæja.. takk fyrir mig laugardagsfólk...
Palli tjáði sig 16:03
14.11.04
..jæja...
er komin heim frá köben...
júlla= takk fyrir frábæra skemmtun og frábæra gestrisni. gaman að sjá hvað vinátta okkar kemur sífelt á óvart...
steinun= fyrirgefðu að það var mér að kenna að þú fórst til skólastjórans.... ég var greinilega algjört stelpu gull... :) takk kærlega fyrir góða gestrisni og dakerí djammið...
eva= takk fyrir að þola flughræðsluna mína...bara 100% takk fyrir ferðina
ásgeir= vona að ég sjái aldrei þessa flautu þína aftur..urghh.. en takk fyrir djammið og fyrir glæpaferilinn okkar = stálum jólakúlum af jólatrjám í tívlíinu..svoldið skrítið að kveðja þig á hóvebaninu með óperuna í græjunum...
vignir= hóhó...takk fyrir mig blöku strákur :D
guðbjörg= þetta var bilaðslega gaman að sjá þig aftur á pan 3 árum seinna :*
rúna= gaman að hitta þig aftur... förum í fótbolta í sumar :D
erla= mikið gaman og mikið fjör að sjá þig aftur.. takk fyrir skemmtilegan tíma í köben og malmö
margrét= takk fyrir að klæmast við mig.. ;)
bara takkkkkkkkkkkkkkkk fyrir öll sömul,..... vonandi gleymdi ég engum....
p.s = stal þessari hugmynd frá evu.. ;)
Palli tjáði sig 19:13
tilvitnun dagsins
dress slutty and shut up, that´s my motto. (Rosario í will og grace)