..kem heim í dag og allt í rústi.. samt ekkert brotið eða ónýtt... en það hafði greinilega verið mikið stuð meðan ég var að vinna... ég tók bara til og lagaði þetta í kvelli.... svo var dinglað um kvöldið og stóð nágranna konan mín með jólasveinahúfu og spurði mig nokkuð feimnislega hvort ég ætti þetta... ég jánkaði því enda fékk ég hana frá björgvini félaga mínum síðustu jól.... þá hafði kötturinn hennar óliver kíkt í heimsókn einsog hann gerir oft (einnig er ólafur duglegur að rölta yfir) og stolið húfuni og farið með hana alla leiðina heim til sín.. fannst mér þetta ofboðslega findið enda nefndi hún að henni þætti hálf óþægilegt þegar kötturinn sinn færi að koma heim með hluti stærri en hann sjálfur.... ég verð samt að fara að merkja fötin mín og fela veskið... kannski er hún að þjálfa upp catburglar = þjóf... HAHAHAHA...
... annars ætla ég á gayballið á gamlárs.. ásgeir gaf mér miða á það (svona síðbúin ammælisgjöf) vona að fólk kíki líka á það... ætlum nokkur að hittast hjá mér á nýjuári (um 1 eða 2) og drekka og tjútta... svo ef þið viljið kíkka látið mig vita :D
Palli tjáði sig 22:17
27.12.05
..jæja...
...hvers konar bjálfi er ég... þetta söng hún ellý vilhjálms í denn og held að það passi alveg við mig...
... þann 22. des um klukkan 1 um nóttina ákvað ég að skrifa jólakort... náði að skrifa nokkur og fór svo að sofa um 2:30.. ég vaknaði og mætti í vinnu klukkan 08:00 og hélt áfram að skrifa og skrifa.... svo var minn sendur á borgarspítalan... þar keypti ég frímerki og setti þau í póst þar sem ég hélt að póstkassinn á spítala væri tæmdur nokkuð oft... en nei nei... ég heirðið í vinkonu minni henni erlu yfir hátíðarnar og þakkaði henni fyrir kortið og spurði hvort hún hefði fengið mitt og svarið var nei...
... frábært mín kort koma þá líklegast ekki fyrr en í dag eða á morgun... allir halda núna að ég hafi fengið samviskubit yfir að fá kort frá öðrum að ég hafi byrjað að skrifa mín á aðfangadagakvöld (familían oppnar þau öll saman þá) svona til að missa ekki kúlið...
...bölvað vesen....
Palli tjáði sig 10:06
25.12.05
...jæja...
...GLEÐILEG JÓL.....
Palli tjáði sig 11:32
tilvitnun dagsins
dress slutty and shut up, that´s my motto. (Rosario í will og grace)