.... þetta lag er snild! 13 ára strákur að syngja lag sem hann samdi og syngur sjálfur. Hann kallar sig jói en lagið heitir "hvar er Guðmundur?" kíkið á það hérna
.... en þetta hér kemur manni í hið besta skap! þvílík snild... hækka í botn og slaka... og tóta mín þetta er nú eiginlega bara fyrir þig !!!
..jæja... víva október
Palli tjáði sig 22:14
5.10.05
..jæja...
...kaupti mér grænakortið áðan, aldrei gert það áður.... fór svo í strætó númer 14 á leið uppá hlöðu (þar sem ég sit núna og er að blogga og það eru svona 6 að bíða eftir tölvum... látum þau bara bíða..MOHOHOHOHO..)
..strætó bílstjórinn var hinn almennilegasti.. bauð mér góðan daginn og spurði mig hvernig ég hefði það... þetta fannst mér nokkuð almennilegt... svo lögðum við í hann.. ég þurfti að hnerra eftir svona 2 mínútur með strætóinum... leit þá ekki strætómaðurinn við og skimaði yfir hópinn og horfði svo á mig og spurði "varstu að hnerra" ég hálf vandræðalegur sagði "já" þá horfði hann á mig og brosti og sagði "guð hjálpi þér".... en þetta var ekki það skrítanasta því hann meðan hann var að leita að hnerraranum þá var bílinn á ferð sem þýðir að hann horfði ekki á veginn... sem mér fannst hálf óþægilegt.... svo talaði hann óþægilega mikið við sjálfan sig.. og hló með hádegisfréttunum á rúv "hahaha.. já það er rétt... hahaha" ...mér fannst þetta sækó.....
...fór í gær með árna og Zvenna á nellys og fengum við okkur bjóra... þar var maður að afgreiða okkur sem var yfirnáttúrulega kurteis... altlaf að spyrja hvort það væri ekki allt í lagi og lagði hendina sína oft á bakið á okkur félögunum og sagði "er ekki gaman" eða "skemmtið ykkur vel" hann talaði með bjagaðari íslensku og var hin almennilegasti.... gaf okkur salthnetur og bros. ...ég sem var að blóta að starfsfólk verslana er oft svo ókurteist að mar fær móral að versla óg vill helst skila dótinu til baka...
...en já ekkert títt og ekekrt nýtt.. bara að leiðast og blogga um e-ð sem er mjög leiðinlegt...
..afsakið það..
Palli tjáði sig 12:43
3.10.05
...jæja...
....ég hef aldrei verið álitinn venjulegur sem ég er nokkuð sáttur við þar sem ég er svoldið skrítinn.... en já veit ekki afhverju ég er að segja ykkur frá þessu þar sem þið vitið þetta líklegast nú þegar... ekki satt?
... ég er að fara til köben/Stokkhólms núna í enda október til 9 nóvember. vandinn er að ég er sjúklega flughræddur... ætla að gefa ykkur smá tíma til að hlæja................................................. já vandinn er að ég bara væli einsog smákrakki um borð og bið bænirnar og blóta sjálfum mér alla leiðina fyrir það að hafa stigið fæti uppí flugvél...
....um daginn var ég að sprikklast uppí world class og sá þá auglýsingu "ertu hræddur að fljúga? komdu til mín ég mun hjálpa þér...." mér leist mjög vel á þetta og ætlaði að skrá mig... svo fór ég að spá... "ætli hann muni sýna okkur myndir af flugvélum? þurfum við kannski að stíga uppí flugvél?.... ef svo er þá fer ég ekki á þetta námskeið" já minn gugnaði á flughræðslunámskeið því ég er hærddur við flug...sorglegt... og já sjúkt!!
...samt hlakkar mig mikið til að fara út....en að sitja í flugvél...*hrollur* ... ég ætla bara að fá læknadóp og nokkra bjóra og fljúga á bleiku skýi!! ;)
...óver and át
Palli tjáði sig 13:51
tilvitnun dagsins
dress slutty and shut up, that´s my motto. (Rosario í will og grace)