ALþJóðASöNGUR VERKALýðSINS Fram, þjáðir menn í þúsund löndum, sem þekkið skortsins glímutök! Nú bárur frelsis brotna á ströndum, boða kúgun ragnarök. Fúnar stoðir burtu vér brjótum! Bræður! Fylkjum liði í dag - Vér bárum fjötra en brátt nú hljótumað byggja réttlátt þjóðfélag. þó að framtíð sé falin, grípum geirinn í hönd, því Internationalinn mun tengja strönd við strönd.
Á hæðum vér ei finnum frelsi, hjá furstum eða goðaþjóð; nei, sameinaðir sundrum helsiog sigrum, því ei skortir móð. Alls hins stolna aftur vér krefjumst, ánauð þolir hugur vor trautt, og sjálfir brátt vér handa hefjumst og hömrum meðan járn er rautt þó að framtíð sé falin o.s.frv.
Vér erum lagabrögðum beittir og byrðar vorar þyngdar meir, en auðmenn ganga gulli skreyttir og góssi saman raka þeir. Nú er tími til dirfsku og dáða. Vér dugum, - þiggjum ekki af náð, Látum bræður því réttlætið ráða, svo ríkislög vor verði skráð. þó að framtíð sé falin o.s.frv.
til lukku með daginn...........
Palli tjáði sig 14:34
|