... ég er búinn að vera að vinna 3 16 tíma vaktir síðustu 3 daga.. ekki mikið gaman það... en þó samt.. þetta var gaman en verður ekki gaman þegar ég oppna launaseðilinn.. því þá kemur altlaf sama upp í kollinn á mann "vá.. tilvhers.."
..einu sinni var ég að vinna á deild 33-A og var deildarstjórinn þar svoldið stíf og var ekki mikið að reyna að kynast starfsfólkinu. ég var búinn að vinna þarna í um 3 ár og ákvað nú að segja henni frá helginni minni en jóakim hinn danski hafði verið í heimsókn
ég sagði "jæja ég fór í bláalónið um helgina með dösnkum vini mínum" hún horfði á mig.. brosti og tók niður gleraugun og horfði á mig og sagði "já gott er, geturu ekki farið að búa um rúmmin á herbergi 19"
þanni var það... ég varð nú nokkuð fúll að hún hafi ekki sýnt meiri áhuga og fór til vinnufélagana og sagði þeim frá því sem fór okkar á milli en orðaði það e-ð asnalega..
.."ég reyndi að hafa samræði við hana og hún sagði mér bara að búa um rúmmin á herbergi 19"
... það þarf ekki að spryja að því en vinnufélagarnir hlóu alveg svakalega mikið... ég skyldi ekkert í neinu en fattaði svo að maður á að segja samræður ekki samræði :Þ
úffs...
Palli tjáði sig 22:04
tilvitnun dagsins
dress slutty and shut up, that´s my motto. (Rosario í will og grace)