úffs hvað það er gott að vinna erfiðisvinnu,
mar er allur lurku laminn. ég sofnaði um 00:00 í gær og svaf til 1 .. var þá reydnar truflaður með pirrandi símtali sem ég nenni ekki að fara í hér, og svaf svo frá eitt til að ganga 10:00 ... vaknaði með smá harðsperrur... virkilega gott að vinna svona vinnu þar sem mar reynir á sig og sefur svo vel..
sá brot af því besta úr brúðkaupinu í kóngsins köben virkilega gaman, hann táraðistsem ég held að boði bara gott, sýnir að hann hafi smá tilfinningar sem er gott í öllum samböndum. Margrét drottning var alveg að bilast af nigótín skorti, tugði tyggjó á milljón (greinilega nikótín tyggjó) og setti það við tannholdið til að fá sem mest kikk... snillari að sjá hana geifla sig svona....
svo júróvisíon í kveld.. árfram belgía, bosnía og grikkland... jíha...
Palli tjáði sig 17:15
14.5.04
hei hei
úffs, lappirnar mínar eru dauðar. ég fékk vinnuna í átvr í kringluni og þvílík hörku vinna. þetta er mjög fínt, ég er að vinna með góðu fólki og móralinn er góður. það tóku allir mjög vel á móti mér og voru mjög næs...
ég var að vinna í bjórnum og var ða fylla á.. ég massast fljótt upp á þessu það held ég nú. en já ef þið ætlið ða kaupa e-ð júróvisíón brugg kíkið þá í átvr á morgun fyrir 4..
jæja ætla í fótabað...
Palli tjáði sig 20:26
13.5.04
jeddúda mía... danmörkin komst ekki áfram í júróvisíjón í gær... meina það!!
flestir sem sungu í gær voru í hvítum fötum og of þröngum buxum, voru einsog illa vafið slátur.... svo voru þeir flestir með svona smá latínó lúk og latínó skegg...
..þau lönd sem komust áfram voru bara balkanskaginn enda er þetta í tyrklandi og því mikil umfjöllun..
en 2 lög komust áfram sem ég hélt með.. diskó lagið með bosníu var snillari dauðans.. hehehe svo kom þarna gríski guðinn í magabolnum hehehehe....
en ég segi bara for helvede, vi skal aldrig sende en islands bösse i eurovision..
óver and át
Palli tjáði sig 20:43
12.5.04
..já alltaf breytast góðir hlutir. en nú er búið ða brytja júróvisíón niður í 2 hluta. í kvöld verður fyrri hlutin og þau 10 lög sem fá hæðstu stigin þau munu komast áfram og keppa í aðalkeppnini á laugardaginn. vandinn er sá ða mínu mati ða þau lið fá þá mikla umræðu og auðvitað aukaspilun í sjónvarpi að fólk kanski fer að fíla þau betur og þá hafa þau smá meiri sjéns en þau lög sem komust beint á úrslitakvöldið...
meina oft þarf mar að hlusta 2 -3 á lag til að svoan huxa "já þetta lag er bara nokkuð gott" svo núna munu lögin sem keppa í kvöld fá 2 spilanir + umfjöllun... þetta verður e-ð skrítið..
19:05 Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2004 Bein útsending frá Istanbúl þar sem fram fer forkeppni 22 þjóða og tíu þeirra komast áfram í lokakeppnina á laugardag.
svo var gaman að sjá jónsa sílikon vöðva og tómas danska júróvisíjón homman saman í mogganum... meina hverjar eru líkurnar að 2 íslenskir hommar keppa fyrir sitthvort landið í júróvisíón ??
Palli tjáði sig 10:49
11.5.04
...hvað er í gangi, rak hendina í og er með ponsu marblett á handarbakinu og þegar ég ýti á hann þá verður mér illt í olnboganum...
..dísús..
Palli tjáði sig 17:53
..að vakna klukkan 6 í morgun við býflugu í glugganum... ómetanlegt!
hrökk við aftur og aftur þegar ég heirði geðveikislegt suð.. BBBZZZZZZZZZZzz... svo ég svaf ekki mikið frá 6-8...
altlaf koma þær fyrr og fyrr þessar býflugur og vespur...
death to thós vesps.. death tú ðem alll!!!!
Palli tjáði sig 11:34
10.5.04
..jæja,
fór í fótbolta í gær með öspini og rúnu í gær... það má segja að ég hafi ekki gleymt neinu...jahh.. eða kanski bara aldrei lært neitt!
fór líka í ræktina í gær og þar voru allt í allt 3-5 manneskjur.. fanst það mjög skrítið..
jæja, ný vika byrjuð og ég bíð spenntur.. verslunarstjóri átvr í kringluni fer líklega bráðum að hringja og spyrja mig "geturu ekki byrjað sem fyrst"..hehehe.. já ég er svoldið sjálfsöruggur enda má það alveg.
...svo er júróvisíón á laugardaginn, ég verð reyndar að vinna og vinn líka morgunin eftir svo ég verð bara þægur. ætla að skreyta deildina hátt og lágt og hafa smá júróvísíón gleði í gangi eða einsog amma segir "if you cant watch it at home, bring the home to your work" eða e-ð því um líkt.
ég er að spá að rúlla saman fólki sem nennir að fara í leiki og svoleiðis eitt kveldið á klambratúni... er fólk ekki til í það?
óver an át
Palli tjáði sig 10:07
tilvitnun dagsins
dress slutty and shut up, that´s my motto. (Rosario í will og grace)