...ég hélt í dag að ríkisstjórnin væri mennsk. væri jafnvel með hjarta eftir að hafa nauðgað öldruðum, öryrkjum, sjúkum, atvinnulausum, fjölskyldum og öllum öðrum hópum samfélagsins sem eiga það eitt sameiginlegt að eiga undir högg að sækja í íslensku samfélagi.
...ég heyrði lauslega þá frétt í útvarpinu að ríkisstjórnin hafði ákveðið að taka þátt í að fella niður skuldir fátækustu landa heims við Alþjóðaframfarastofnunina. Ég var bara nokkuð ánægður með það og hélt eins og ég sagði áðan að ríkisstjórnin hefði hjarta. En svo ákvað ég að kinna mér þetta mál betur og viti menn þá er þetta framlag til að fella niður skuldir fátækustu landa heim ekki auka framlög til þróunarmála heldur á kostnað annara þróunarvinnu. Svo að þetta er ekki auka peningur heldur er bara búið að færa peningin til í önnur mál.
... Ég hef bara eitt að segja.. Verum ekki gleymin!! Það er ekki ár í kosningar. Við skulum ekki gleyma hvað gert hefur verið og þá meina ég bæið góða og vonda hluti. að mínu mati þá þarf að breyta. Við þurfum á breytingum að halda og þá meina ég ekki 3 forstæisráðherra á einu kjörtímabili. Ekki gekk það vel fyrir R-listan að hafa 3 borgarstjóra. viljum við ekki breytingar? ég held það...
... jæja.. palli pólitíkus kveður...
Palli tjáði sig 19:52
..jæja..
.. var að lesa visir.is í dag... og þar var þetta skemmtilega heiti á frétt "Fíkniefnafundur á Dalvík" ... ég ný vaknaður hélt auðvitað að fólk hefði verið að funda um fíkniefni á Dalvík....
..en já...
Palli tjáði sig 10:27
2.7.06
...jæja..
..kominn heim frá köben og mun skrifa um ferðina síðar. ég var að vinna í gærkveldi og fékk að taka leigubíl heim þar sem ég þuyrfti að vera aðeins lengur í vinnuni og strætó hættur að ganga. Þeir sem vinna hjá ríkinu (allavegana landspítalanum) fá leigubílanótu ef þeir þurfa að mæta í vinnu á sunnudagsmorgni eða fara það seint heim af vakt að strætó er hættur að ganga.
...leigubílstjórinn pikkaði mig upp og keirði mér heim. Ég kvittaði á blaðið og beið eftir að hann mundi skrifa upphæðina á 2 blöð sem var 1040 krónur (bara vera viss um að hann gerði þetta rétt)... leigubílstjórinn var ekki alveg að fíla það og horfði á mig hálf hissa og sagði "hvað ertu að bíða eftir góða nótt kossi?"... ég var nokkuð hissa og svaraði "..ehhhhh.. ekkert frekar" og fór út úr bílnum...
.... hefði átt að segja já og halla mér að honum eða biðja hann að fylgja mér að húsinu...
... þoli ekki pirraða dóna... en já ég er nú oft pirraður...en ég er ekki beint dóni, bara segi það sem mér finnst... kalla það hæfilega hreinskilni..með dash af kaldhæðni
Palli tjáði sig 10:25
tilvitnun dagsins
dress slutty and shut up, that´s my motto. (Rosario í will og grace)