..ég var að skrifa grein in á politik.is og ákvað að birta hana líka hér. hún er stutt og að ég held skemmtileg svo endilega rennið yfir hana. og ef þið viljið frekar skoða hana á vefi ungra jafnaðarmanna þá skuluð þig smella hér og þá eigið þið líka auðveldara með að dreifa henni til vina og vandamanna..hehe
Tæknilegur ásetningur?
Í viðtali við Árna Johnsen um daginn sagði hann að ástæða þess að hann afplánaði tveggja ára dóm á Kvíabryggju vera ,,tæknileg mistök”. Þess skal geta að ákæran á hendur Árna var í 27 liðum en hann var fundinn sekur um brot í 18 þeirra í Héraðsdómi en 22 í Hæstarétti.
En Árni telur málið vera það tæknilegt að hann sagði af sér þingmennsku vegna málsins. Þess má geta að hann var meðal annars fundinn sekur um fjárdrátt, mútuþægni og brot í opinberu starfi sem við hljótum að vera sammála honum Árna að þetta eru allt tæknileg brot. Eða hvað? Kannski er þetta ákveðin tækni hjá honum Árna að þiggja mútur eða stela íslenska fánanum. Líklegast allt tæknilega útpælt hjá honum. Eða hvað?
Hann var dæmdur í tveggja ára óskilorðsbundið fangelsi í Hæstarétti fyrir brot sín. Árni var meðal annars fundinn sekur fyrir að hafa dregið sér jólaseríu, kantsteina, timbur,verkpalla, þéttidúka, eldhús- og baðinnréttingu og svo dró hann sér íslenska þjóðfánann.
Árna var ekki treystandi fyrir einu ábyrgðar- og virðingarfyllsta starfi Íslands – setu á löggjafarþingi þjóðarinnar. Hann sveik íslensku þjóðina og stal meðal annars íslenska þjóðfánanum en segir svo nú, þegar sjálfstæðismenn í Suðurkjördæmi hafa kosið hann, að þetta hafa bara verið ,,tæknileg mistök”. Þarna finnst mér Árni vera að gera lítið úr þessum alvarlegu brotum. Við eigum að geta treyst þingmönnum okkar.
Sumir kunna að skammast sín og sýna iðrun. Ekki verður undirritaður var við það þar sem Árni kemur enn á ný með nýja ,,afsökun” á brotum sínum gegn íslensku þjóðinni.
Sjálfstæðismenn í Suðurkjördæmi virðast styðja hann en ég efast að hann njóti eins mikils traust út fyrir þann hóp. Alla vega hvatti stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS) Árna til að sýna ,,auðmýkt” þegar hann ræðir brot sem hann var sakfeldur fyrir í starfi sínu sem þingmaður. Í þessari ályktun kemur meðal annars fram:
,, Að gefnu tilefni gerir stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna þá kröfu til Árna Johnsen sem hugsanlegs þingmanns Sjálfstæðisflokksins að hann sýni auðmýkt þegar hann ræðir um þau brot sem hann var sakfelldur fyrir í starfi sínu sem þingmaður. Háttsemi sú sem Árni var dæmdur fyrir var ekki "tæknileg mistök" heldur alvarleg og mjög ámælisverð afbrot.”
Geir H. Haarde forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins sagði Árna Johnsen njóta fyllsta traust flokksforystunnar sem er gott og blessað en nýtur hann trausts almennings? Ég held að hver og einn verði að meta það fyrir sig.
Nú þegar jólin eru að ganga í garð er best að telja jólaseríurnar sínar og athuga hvort að einhverja af þeim vanti. Það gæti nefnilega talist tæknilegt mistök ef þær hverfa.
Palli tjáði sig 13:55
15.11.06
...jæja..
.. þá er prófkjörið búið! þetta var skemmtilegur tími svona eftir á að hyggja en var nokkuð stressandi svona dags daglega og sérstaklega síðustu 3 dagarnir fyrir stóra daginn. Þetta var ómetanleg reynsla og hef ég kynnst skemmtilegu og góðu fólki.
..þátttakan var tvöföld miðað við síðasta prófkjör flokksins til alþingis og er það nokkuð góð aukning. Frambjóðendur voru einnig tvöfalt fleiri nú en fyrir 4 árum. Einnig var reynd fyrsta netkosning í prófkjöri á íslandi og gekk það ágætlega og verður líklegast notuð aftur.
..guðrún ögmundsdóttir datt af þingi og er það miður en ekki geta allir unnið. Ég hefði viljað meiri endurnýjun en það skal hafa í huga að Helgi hjörvar, Mörður árna og Ágúst ólafur komu allir inn nýjir síðast og ekki er hægt að búast við endurnýjun í hverju prófkjöri.. eða hvað?
..í efstu 8 sætunum eru 4 karlar og 4 konur einnig eru 2 öflugar konur í baráttusætunum okkar þær Katrín Heimis og Valgerður Bjarna.
..Formaðurinn fékk góða kosningu í 1. sæti eða um 70% atkvæða. Sumir hverjir (þá andstæðingar flokksins) telja þetta lélega útkomu þar sem Geir H. Haarde hafi fengið ríflega 90% atkvæða í 1. sætið. Hver segir að formaður eigi að fá 100% atkvæði í 1. sætið? Fólk hlýtur að mega að hafa mismunandi meiningar hver vermið 1. sætið. ekki er langt síðan að össur og ingibjörg börðumst um formensku í samfylkingunni og auðvitað eru ýmsir þar sem styðja enn össur í 1. sætið. Einnig var jóhanna Sigurðardóttir formaður Þjóðvaka og tekur til sín atkvæði í 1. sæti. Svo var forvitnilegt að horfa á fréttir bláskjás en þar kom fram að Árni mathiesen fjármálaráðherra hefði fengið góða kosningu í fyrsta sætið á suðurlandi. Í fyrstalagi hrökklaðist hann burt úr sínu eigin kjördæmi og náði svo ekki bindandi kosningu í fyrsta sætið á suðurlandi. En bláskjár taldi þetta mikinn sigur. En það er munur á jóni og séra jóni ekki satt?
..ég bendi ykkur á þessa grein á heimasíðu marðar en þar fjallar hann um störf kjörstjórnar.
..samfylkingin er tilbúinn!
Palli tjáði sig 12:01
tilvitnun dagsins
dress slutty and shut up, that´s my motto. (Rosario í will og grace)