.. langt er liði síðan ég bloggaði hér síðast! ég er kominn með mogga blogg sem er pallieinars.blog.is
ég er að flytja til köben í minnst 6 mánuði þann 14. maí ! ég reikna með að birta sömu færslur á þessum 2 stöðum.
túlelú !
Palli tjáði sig 22:39
16.1.07
..jæja...
..ég lifi á brúninni eins og lagið syngur, svo ég pantaði áðan 2 miða á úrslitakvöld júróvisíjón hér á íslandi 17. febrúar.. mæli með að þið gerið það sama.. getum haft smá djamm.. fékk bara nokkuð góð sæti... flott að kaupa þetta svona fyrirframm...
Palli tjáði sig 20:04
12.1.07
jæja....
..er atlantsolia ekki málið?
Palli tjáði sig 11:47
3.1.07
...jæja..
...alltaf er fallegt að kveðja gamla árið og fagna því nýja. reyndar var sóðaskapurinn eftir sprengingarnar ekki eins fallegur. svo var svo mikið logn að ég gat varla tekið myndir vegna svifryksmengunar. svo voru öldruð hjón í garðabænum sem gáfust upp og flúðu með stóla og kaffibolla inn á baðherbergi og hringdu í 112 og spurðu hvenær óskupunum myndi nú ljúka. skiljanlega var fátt um svör. ég hefði nú sagt að ég héldi að þessum ósköpum myndi ljúka rétt eftir miðnætti...
...
Palli tjáði sig 14:56
31.12.06
..gleðilegt ár og takk kærlega fyrir það gamla og góða..
..það er dimmt í palla landi nú í lok árs. Ólafur sem týndist um morguninn 23 desember fannst dáinn 28. desember. ég var búinn að leita að honum nótt og dag og var farinn að gruna það versta þar sem ólafur er mjög heimakær og er ekki mikið fyrir að það ráfa langt frá leifsgötunni sinni. hann fæddist 22. nóvember 2004 og dó 23. desember 2006. mánuði eftir 2 ára afmælið sitt.
...ég vaknaði um 8 leitið við símtal frá vaktmanni landsspítalans háskólasjúkrahúss. hann kynnti sig og sagðist hafa fundið ólaf. ég brosti, hélt nefnilega í þá von að hann hefði lokast inni í einhverri byggingu landspítalans og mundi finnast í byrjun vinnuvikunar. hann sagði svo með djúpri röddu að hann væri dáinn. hjartað mitt hætti að slá, það dó. eins og að fá ör í gegnum það. sársaukinn var mikill. ég spurði hvort ég mætti ná í hann og sagði hann það sjálfsagt. ég hringdi í vin minn og lét hann vita og bað hann að keyra mig. ég reyndi að halda tárunum aftur.
..ég fór með vini mínum á landspítalan og hitti þar vaktmann. virkilega almennilegur maður. hann sýndi mér hvar ólafur væri og benti á gulan þykkan poka. við hliðina á pokanum var ólin hans í littlum plaspoka. ég sá í gegnum þennan gula poka móta í fallega en blautan feldinn hans ólafs sem var engu öðru líkur. eini feldurinn sem ég hef séð með hjartalöguðu mynstri.
.. ég fór með hann upp í víðidal en bað vin minn fyrst að keyra leifsgötuna hægt. vildi fá að fara með honum götuna. hversu oft var hann að elta mig mjálmandi þegar ég fór í strætó svo ég þurfti að snúa við og fara með hann heim og missti því oftar en ekki af strætónum. við komu á víðidalinn fékk ég ekki bestu þjónustu sem ég hefði viljað við þessar aðstæður. ég pantaði að hann yrði brenndur sér. svo bað ég afgreiðslukonuna hvort hún gæti tekið hann úr pokanum og vafið hann í teppið sitt svo ég gæti séð hann í síðastaskiptið.
..ég og vinur minn löbbuðum inn gang. fólk labbaði fram hjá honum og var nokkur erill enda spítali. þar sá ég ólaf á borði. vafinn í teppi. hún sagði mér nokkuð ósmekklega að ekkert vera að lyfta teppinu þar sem hann væri "allur fóbrotinn og illa farinn"... þarna lá ólafur minn, blautur, með opinn augu og aðra loppuna út úr teppinu. ekekrt líf í augunum hans, loppan hvít. ég sagði "elsku kallinn minn". ég var ánægður að sjá hann en sársaukinn var mikill. ég hélt um loppuna enda fannst honum og mér það gott þegar hann fór að sofa að ég héldi um loppuna. hann malaði þá sem hæst og opnaði loppuna svo ég gæti klórað honum inn í henni. en nú var ekkert mal, ekkert líf. ég signaði hann og fór með faðir vorið. grét mikið en fannst óþægilegt að sjá til fólksins sem labbaið fram hjá. erfitt að vera svona berskjaldaður fyrir framan ókunnuga. ég kvaddi hann fallega og fór.
..síðustu dagar hafa verið erfiðir og hafið þið vinir mínir reynst mér ómetanlegir. styrkurinn, stuðningurinn og hlýjan hafa reynst mér vel. sumir hafa sagt þetta er nú bara köttur. en ólafur var ekki bara köttur, hann var gleðigjafinn minn. það er tómlegt að búa einn og þegar ólafur kom til mín þá varð leifsgatan líflegri jafnvel þó að hann saf oft heilu dagana. tómlegt er nú í palla landi. ég er mikil félagsvera þó að einveran sé fín þá er hún ekki holl til lengdar. en hversu gott það er að hafa fengið hann aftur þó að það sé sárt þá er svo gott að vita hvar hann ólafur minn er.
..ég vissi að hann hafði ekki farið langt enda fannst hann við eiríksgötu 19, í kjallartöppum beinbortinn og illa farinn. hefur líklegast orðið fyrir bíl og hlupið í skjól í hræðslu sinni. hann hefur verið upptekinn af leik og gleymt að horfa til hægri og vinstri.
..askan hans ólafs er komin heim. ólafur er heima hjá mér og ég veit hann fylgir mér alltaf. barnatrúin mín er sterk og hefur gert mig að þeim eisntaklingi sem ég er. viknona mín benti mér á fallegt ljóð og ég er búinn að þýða hluta úr því hér: "öll dýr sem hafa verið veik og gömul fá fulla heilsu og kraft. þau sem voru meidd eða bækluð verða sterk á ný. eins og við mundum eftir þeim í draumum okkar. dýrin eru glöð og ánægð...fyrir utan eitt... þau sakna öll einhvers sem er mjög sérstakur, einhver sem varð að verða eftir"
..hlakka til að sjá ykkur á nýju ári.
Palli tjáði sig 20:39
24.12.06
..ég vil óska ættyngjum, vinum, vandamönnum og lesendum gleðilegra jóla..
..ég hef verið að hugsa síðustu daga um hvað snúast jólin og hef tekið að mín skoðun á þeim hefur breyst í gegnum tíðina. Allt frá því að vilja bara harða pakka og í það að vilja enga pakka. Jólin hjá mér er að vera í faðmi fjölskyldunnar og njóta hverrar mínútu. jólin hjá mér er að hugsa um þá sem ég hef misst. jólin hjá mér er að hugsa um þá sem minna meiga sín. jólin hjá mér er að hjálpa þeim sem minna meiga sín. jólin hjá mér er að passa upp á dýrin sem sum hver hafa það miður. jólin hjá mér er að liggja upp í rúmmi og opna skemmtilegu jólakortin. jólin hjá mér er að heyra hallgrímskirkju spila jólalög. jólin hjá mér er að fara með bænirnar áður en ég sofna. jólin hjá mér núna eru eilítið öðruvísi en oft áður þar sem ég verð að vinna.
..nú hefur ólafur kötturinn minn verið týndur í sólarhring og ég finn fyrir miklum tómleika í littlu íbúðinni á leifsgötu. ég er búinn að labba allt hverfið og dingla lykklakippuni og kalla nafn hans. ég sakna hans sárt. vona að hann komi í leitirnar sem fyrst. skrítið hvað slæmar hugsanir ná oft yfir þær góðu þegar vanlíðan á sér stað.
njótið jólana og þeirra með fjölskyldu, vinum og ættingjum.
langar að kveðja með texta úr uppáhalds jólalaginu mínu. Sérð þú það sem ég sé
sagði vindurinn við lítinn dreng sér þú það sem ég sé hátt upp á himnum drengur minn sérð þú það sem ég sé
skært ljós, skært ljós lýsir loftin blá lýsir staðin þar sem hann lá lýsir staðinn þar sem hann lá
heyrðist lítið lamb segja smala dreng hlusta þú á hljóðið það hljómar hátt upp á himninum hlusta þú á hljóðið
það hljómar hátt yfir alla jörð hljómar eins og heil englahjörð hljómar eins og heil englahjörð
......
Palli tjáði sig 15:25
22.12.06
..jæja..
...sumir stressa sig ekkert yfir jólunum...
...láta bara aðra um það...
Palli tjáði sig 13:54
tilvitnun dagsins
dress slutty and shut up, that´s my motto. (Rosario í will og grace)